Úr vetrardvala

í vorgleði

Frí vinnustofa fyrir konur 45+ sem upplifa þreytu og spennu í líkamanum

og vilja taka á móti vorinu með meiri orku, skýrari fókus og ró í hjarta.

29. apríl kl 17.15

Er þetta eitthvað sem þú kannast við?

  • Vaknarðu þreytt – jafnvel þó þú hafir sofið?

    Áttu erfitt með að sofna eða ná djúpri hvíld?

  • Finnst þér hugurinn oft vera þokukenndur og þungur?

    Er stundum erfitt að einbeita sér eða ná utan um daginn?

  • Þú veist hvað þú gætir gert en hefur þig ekki af stað

  • Þú finnur fyrir doða eða fjarlægð frá sjálfri þér

  • Kannski langar þig að finna aftur ró og léttleika -

    en veist ekki hvar þú átt að byrja?

...Líkaminn breytist eftir miðjan aldur og þá þarf hann nýja nálgun.

Hann er ekki að biðja um að við keyrum okkur í gang með látum.

Hann er að biðja okkur um að hlusta

Vorinu fylgir oft doði og þyngsli sem getur aukið orkuleysi og heilaþoku

Á vinnustofunni færðu

  • Skýrari innsýn í hvað er að gerast í líkamanum og af hverju vorið getur aukið þreytu, þyngsli og heilaþoku.

  • Einfaldar leiðir með öndun og mjúkri. taktfastri hreyfingu til að losa um spennu og auka orku.

  • Skilning á þvi hvernig taugakerfið er lykill að aukinni orku og jafnvægi og að bættum svefni, góðri meltingu og hæfileikanum til að slaka á.

  • Leiðir til að finna meiri ró, orku og dýpri tengingu við sjálfa þig

Þessi vinnustofa er fyrir þig ef...

  • Þú ert kona á miðjum aldri og finnur að líkami og hugur hafa breyst - og að gömlu aðferðirnar sem áður hjálpuðu gera það ekki lengur.

  • Þú upplifir orkuleysi, svefntruflanir eða einbeitingarskort og það sem virkaði áður gerir það ekki lengur.

  • Þú finnur að einkenni eins og þreyta, kvíði eða heilaþoka eru jafnvel enn meiri en áður núna með vorinu og vilt kynnast einföldum náttúrulegum leiðum til að auka orkuflæði, einbeitingu og innri kyrrð.

Líkaminn er vitur vera

Við höfum lært að líta á líkamann sem verkefni - eitthvað sem þarf að laga.

En líkaminn veit hvernig hann á að sigla í gegnum breytingar.

Stundum þurfum við bara að læra að hlusta aftur

Að skilja merkjamál hans upp á nýtt

Þá opnast dyr að ró, seiglu og auknu jafnvægi

Sæl, ég heiti Guðrún

Ég hef starfað við heildræna heilsu og líkamsvitund í um 30 ár og stutt hundruð kvenna í að finna meiri ró, jafnvægi og tengingu við sjálfar sig.

Ég hef fundið á eigin skinni hvað það er dýrmætt að kunna leiðir til að hlúa vel að taugakerfinu og létta á huga og líkama . Og ég fann að ég þurfti enn meira á því að halda eftir miðjan aldur- og ekki síst á vorin þegar líkaminn er að komast aftur í gang eftir þunga og drunga vetrarins.

Í minni vinnu legg ég áherslu á mjúka, raunhæfa nálgun sem styður líkamann og taugakerfið – ekki með því að bæta við álagið, heldur með skilningi og nærveru.

Ég var efins um að ég hefði orku til að gera breytingar. En það voru óþarfa áhyggjur.

Kristín Pétursdóttir

Ég hef öðlast meiri skilning á því hvernig líkaminn virkar.

Ég er loksins að sjá mynstrin og átta mig betur á hlutunum.

Helga Ævarsdóttir

Ég var efins um að ég hefði orku til að gera breytingar. En það voru óþarfa áhyggjur.

Kristín Pétursdóttir

Ertu tilbúin að taka á móti vorinu

með léttleika og full af orku og gleði?

Skráðu þig á ókeypis vinnustofu, 29. apríl, kl 17.15