Nærandi morguntaktur

Fyrir konur á miðjum aldri sem þrá meiri ró, jafnari orku og betri svefn

11 daga styðjandi morgunstund til að vekja líkamann, stilla taugakerfið og finna aftur þinn eigin takt
Svo dagurinn geti byrjað í kyrrð, skýrleika og orku.

Við byrjum 6. mars.

Er líkaminn ekki eins og hann var?

Á miðjum aldri finna margar konur að líkaminn bregst öðruvísi við en áður.

  • Svefninn verður viðkvæmari.

  • Orkan verður sveiflukennd.

  • Innri hraði eykst.

Oft er þetta ekki spurning um viljastyrk — heldur að hlúa að taugakerfinu.

Kannastu við þetta mynstur?

Náttúran virðist eiga svo auðvelt með þetta en fyrir okkur manneskjurnar er það oft ekki eins áreynslulaust að taka á móti nýjum árstíðum.

Oft finnum við fyrir þunga og drunga eins og úrillur björn sem kemur hikandi út úr vetrarhýðinu.

Á breytingaskeiði eru árstíðaskipti oft enn erfiðari en áður. Vorið getur fært með sér bæði von og vanvirkni.

Orkan er ekki eins og hún var og gömlu leiðirnar til að ræsa kerfið með kaffi, keyrslu og viljastyrk, jafnvel með tóman tank, virka ekki lengur. Líkaminn er að kalla á aðrar leiðir.

  • Þú vaknar og ert strax komin af stað inn í verkefni dagsins

    áður en þú hefur náð að tengja við sjálfa þig

  • Áður en þú veist af ertu búin að grípa símann, verkefnalistann eða kaffibollann

  • Orkan er annaðhvort of lítil …eða þú ert uppspennt og á yfirsnúningi.

  • Dagurinn byrjar í flýti og þú finnur að þessi hraði eltir þig í gegnum daginn.

  • Þú veist innst inni að þegar þú gefur þér þó ekki sé nema stutta stund til að tengja við sjálfa þig þá verður allt aðeins skýrara og bjartara.

  • Andardrátturinn dýpkar, hugurinn róast.

    Þú finnur aftur fyrir þér.

Líkaminn elskar takt

  • Þegar við búum til einfaldan morguntakt fær líkaminn skilaboð um öryggi.

  • Þegar líkaminn upplifir að hann sé öruggur þá er hann opnari fyrir breytingum

  • Styðjandi morgunstund setur tóninn fyrir allan daginn - og jafnvel svefninn næstu nótt.

  • Þegar við byrjum daginn á nærandi hátt fær líkaminn önnur skilaboð — og það getur haft djúp áhrif á jafnvægi hugar og líkama.

Hvað felst í Nærandi morguntakti?

Hér býðst þér einfaldur en styðjandi rammi sem hjálpar þér að byrja daginn í tengingu við huga, líkama og sál.

Við hittumst á morgnana í stutta stund þar sem við:

– hreyfum líkamann og komum orkuflæðinu af stað
– gerum öndunaræfingar til að auka orkuna og gefa huganum meiri stöðugleika

– og endum í kyrrð og hugleiðslu

Þetta er ekki átaksverkefni.

Heldur rými sem þú mætir í eins og þú ert — þreytt eða orkumikil, róleg eða spennt.

Engin fyrri reynsla af jóga er nauðsynleg.

Smám saman fer líkaminn að rifja upp hvernig það er að vera í sínu náttúrulega ástandi.

Hvað er innifalið?

  • Zoom tími áður en morgunjógatímarnir hefjast

  • 11 morgnar á Zoom

  • 30 mín á virkum dögum

  • Lengri tímar á laugardögum

  • Hlé á sunnudögum

  • Upptökur eftir hvern tíma

  • Jóga, öndun og stutt hugleiðsla

  • 2ja tíma mini-retreat

  • Styðjandi, sameiginlegt hóprými

Smátt og smátt gætirðu farið að finna...

Jafnari orku yfir daginn
Minni innri hraða og spennu

Líkaminn styrkist og verður sveigjanlegri

Andardrátturinn fer að dýpka
Rólegra og skýrara upphaf á deginum
Dýpri svefn
Þú ert aðeins nær sjálfri þér.

Og kannski finnur þú takt sem þú vilt halda áfram að hlúa að

Líkaminn man líðanina eftir tímann. Og fer að kalla á meira.

Verð: 19.000

Hægt er að sækja um styrk hjá flestum stéttarfélögum.

Hvað segja aðrar konur?

Það sem ég sæki mest í í þessum tímum er sjálfstraustið, styrkurinn og jarðtengingin. Ég er að vinna vinnu þar sem ég gef mikið af mér. Ég fæ oft erfiða viðskiptavini sem taka orku. Síðan ég fór iðka reglulega er þetta allt annað líf. Ég er búin að læra að ég er ekki hugsanirnar mínar.”

Anna Dís Guðrúnardóttir, snyrtifræðingur

„Það breytti miklu að fara að hugleiða daglega með stuðningi.
Ég fór endurnærð í vinnuna og varð hugrakkari gagnvart erfiðum aðstæðum bæði í vinnu og einkalífi.“
Helga Arnalds, leikstjóri og listakona

„Hugleiðslurnar hjálpa mér að vera í andlegu jafnvægi.
Ég fer léttar í gegnum álag og sef betur en áður.“
Katrín Magnúsdóttir, skrifstofustjóri og kennari

Þetta námskeið

er fyrir þig ef...

  • Þú ert á tíðahvörfum eða hefur lokið breytingaskeiði

  • þig langar að byrja daginn í betri tengslum við sjálfa þig og líkamann

  • þú finnur að það er erfitt að byrja á nýrri rútínu ein, þó þú vitir hvað myndi styðja þig

  • þú þráir meiri og jafnari orku

  • þig langar að finna á eigin skinni hvað dagleg iðkun gerir fyrir þig

  • Þú hefur litla eða enga reynslu af jóga og vilt fá stuðning við að byrja.
    Eða þú ert vön jóga en langar að fá ramma til að iðka reglulega.

    Þú þarft ekki að vera liðug eða „góð í jóga“.
    Þú mætir eins og þú ert.

Nánar um Morguntakt

  • Við hittumst fyrst í undirbúningstíma á Zoom

    Í vikunni á undan hittumst við, stillum okkur saman og sköpum góðan grunn fyrir morguniðkunina. Þar færðu að spyrja spurninga og finna þinn eigin takt inn í þessa daga.

    Þú færð aðgang að námskeiðssvæði þar sem verða upptökur og skýringar.

    Ef þú getur ekki verið með í morgunjóganu þá færðu samt hvatninguna til að iðka þegar upptakan kemur inn í pósthólfið þitt.

    Þú hefur aðgang að upptökunum áfram eftir námskeiðið og getur til dæmis valið að nýta þér hugleiðsluna áfram.

  • Morgunjógatímarnir hefjast 6. mars

    Við hittumst í hálftíma morgunjóga kl 7 - 7.30 á virkum dögum

    Laugardagstímarnir eru lengri og dýpri og byrja kl 8.

    Hlé á sunnudögum

  • Hver morguntími innifelur: Jóga, öndunaræfingar, slökun og hugleiðslu.

    Jógaæfingar sem koma jafnvægi á taugakerfi og opna orkuflæði líkamans, styrkja naflann og opna mjaðmir. Endurnærandi öndunaræfingar. Stutt slökun og hugleiðsla í lokin.

    Þú ferð út í daginn með orkuríka friðsæld.

  • Engin þörf á fyrri reynslu af jóga.

    Þú þarft ekki að vera liðug eða einbeitt til að taka þátt. Þú mætir eins og þú ert.

    Ef þú kemst ekki í tímann geturðu nýtt þér upptöku.

    Laugardaginn 14. febrúar verður tveggja tíma mini retreat fyrir dýpri slökun og endurnæringu

Sæl, ég heiti Guðrún

Ég hef starfað við heildræna heilsuráðgjöf og jógakennslu í yfir 30 ár og styð konur á miðjum aldri í að finna meiri ró, orku og tengingu við líkama sinn.

Ég hef leitt yfir 160 nemendur í gegnum jógakennaranám og kennt fjölmörg námskeið þar sem áherslan er á líkamsvitund, taugakerfið og dýpri skilning á lífinu og okkur sjálfum.

Ég kynntist jóga á tímabili þegar lífið var krefjandi — og fann mjög fljótt hvernig regluleg iðkun færði mér bæði dýpri ró og meiri styrk.

Ég hef séð það aftur og aftur hjá sjálfri mér og nemendum mínum að það sem skiptir mestu máli er ekki að gera mikið – heldur að skapa sér reglulega iðkun sem endurnýjar og gefur okkur styrk í dagsins önn. Og tilfinningu fyrir að vera hluti af stærri heild.

Það er andinn á bak við Morguntakt.

Verð: 19.000

Hægt að sækja um styrk hjá flestum stéttarfélögum.

Algengar spurningar

Þarf ég að hafa reynslu af jóga til að taka þátt?

Nei tímarnir eru bæði fyrir vana og óvana jógaiðkendur. Þú getur lagað æfingarnar að þér.


Þarf ég að vera liðug eða góð í að einbeita mér til að geta notið þessara tíma?

Nei, jóga er einmitt svo gagnlegt ef þú ert stirð. Þá ertu í raun á fullkomnum stað til að byrja. Og liðleikinn kemur fljótt. Þetta form af jóga er sérstaklega aðgengilegt fyrir þá sem eru að glíma við mikla streitu, athyglisbrest, kvíða eða þokuhuga. Þú mátt búast við að finna töluverðan mun á líkama og huga eftir þessa ellefu daga.

Hvað ef ég kemst ekki alla morgna - eða get ekki verið með kl sjö?

Það er allt í lagi.
Allir tímarnir eru teknir upp og þú færð aðgang að þeim strax eftir tímann.

Þú getur því iðkað þegar þér hentar  – sama hvort það er seinna um morguninn, yfir daginn eða um kvöldið.
Þú missir ekki af neinu.

Hvað ef ég hef verið mjög þreytt og orkulaus undanfarið?

Þá er einmitt góður tími til að byrja mjúklega.
Æfingarnar eru gerðar þannig að þú getur hlustað á líkamann og farið á þínum hraða.
Markmiðið er ekki að ýta á breytingar — heldur að styðja líkamann til að finna jafnvægi.

Get ég óskað eftir styrk frá mínu stéttarfélagi?

Já flest stéttarfélög veita styrki í tengslum við einhvers konar hreyfingu og eða sjálfsrækt. Námskeiðið getur fallið undir hvort sem er.

Hvers konar jóga er kennt?

Í tímum vinnum við bæði með teygjur, flæði og hreyfingu í takti við andardráttinn
Takturinn hjálpar líkamanum að losa um spennu og róa taugakerfið.

Auk öndunaræfinga og hugleiðslu.

Markmiðið er ekki að gera æfingarnar „rétt“ — heldur að virkja orkuna, opna flæði og skapa meiri ró og jafnvægi.
Þú getur alltaf lagað æfingarnar að þér — á dýnu eða stól.

Flestar konur finna bæði léttleika og endurnæringu eftir tímana.

Er þetta bara hreyfing eða líka öndunaræfingar og hugleiðsla?

Allt þetta.
Öndunin er stór hluti af iðkuninni og hver tími endar á hugleiðslu og slökun.

Margar konur nota einmitt þessa morgna til að koma sér upp reglulegri hugleiðslu – með stuðningi og ramma.
Þú færð líka upptökur svo þú getir haldið áfram heima.

Hentar þetta mér ef ég er ekki morgunmanneskja?

Já. Margar konur upplifa að þegar þær fá stuðning við að eiga svona reglulega stund með sjálfri sér á morgnana, þá fer líkaminn smám saman að stilla sig inn á nýjan takt. Það hjálpar þeim að finna meiri orku yfir daginn. Svefninn dýpkar og það verður auðveldara að vakna.

Hversu lengi hef ég aðgang að upptökunum?

Í þrjá mánuði eftir að námskeiðinu lýkur.

Hvað ef ég er ekki viss hvort þetta hentar mér?

Sendu mér línu og við skoðum það saman. Þú getur sent mér tölvupóst á [email protected] eða sent mér skilaboð á messenger.

ERTU MEÐ FLEIRI SPURNINGAR?

Vantar þig aðstoð eða ertu með spurningar? Sendu mér tölvupóst á [email protected]

Ef þú vilt getum við hist í stuttu netspjalli og farið yfir málin til að sjá hvort námskeiðið hentar þér.

Nærandi morguntaktur

Hér gefst þér tækifæri til að finna þinn takt og upplifa á eigin skinni hvað gerist þegar þú byrjar daginn í meiri ró og tengingu við líkama og huga.

Ellefu morgnar.
Smá stund fyrir þig.
Styðjandi rammi til að byrja daginn aðeins öðruvísi.

Ef þetta talar til þín — ertu hjartanlega velkomin með.