Blómstraðu á breytingaskeiði
Það er ekki komin dagsetning á næsta námskeið, en ef þú skráir þig á biðlistann, þá sendi ég þér skilaboð og þú færð tækifæri á að skrá þig um leið og ég opna fyrir skráningar.
Ég heiti Guðrún Arnalds og ég rek jóga- og heilsustöðina Andartak. Ég hef starfað við heildræna heilsuráðgjöf í um 30 ár auk þess að kenna jóga og leiðir til að auka líkamsvitund og styrkja tengslin milli hugar og líkama.
Á þessum tíma hef ég sótt mér heilmikla menntun á sviði heildrænnar heilsu og líkamsvitundar, jóga og ayurveda. Ayurveda kennir okkur að lifa í takti við náttúruna og okkar sönnu náttúru.
Í gegn um þá vinnu og eigin reynslu hef ég öðlast góða innsýn inn í breytingaskeiðið og þau tækifæri sem þar leynast. Í mínum huga er líkami okkar meira en bara læknisfræðilegt fyrirbæri og hann kann þá list að sigla í gegn um breytingar betur en við getum ímyndað okkur.