Ertu með kvíða fyrir því sem áður var lítið mál?
Ertu vön að vera orkumikil og framtakssöm og hefur núna bara rétt svo orku fyrir vinnuna og ekki mikið meira en það?
Líður þér stundum eins og þú sért fjarverandi - ekki til staðar í líkamanum?
Ertu að bilast á svitaköstum, lélegum svefni og framtaksleysi?
Ertu að glíma við heilaþoku og finnst orðið vera djúpt á gleðinni?
Finnst þér tíminn fljúga frá þér og þú kemur engu í verk?
Að finnast þú þurfa að læra að lifa í nýjum líkama
Að vera með útþaninn maga og fitna um miðjuna án þess að hafa breytt mataræðinu
Aukna næmni fyrir streitu og fæðuóþol sem ekki var til staðar áður
Að langa til að gera breytingar en vita ekki alveg hvaða skref þú átt að taka.
Að vakna útsofin
Að vita hvað líkaminn þarf til að vera í jafnvægi
Að finnast þú tilheyra líkama þínum á ný
Að endurheimta gleðina og hæfileikann til að hlakka til
Að vera ekki alltaf með útþaninn kvið og byrja að léttast aftur
Að geta treyst minninu
Að hafa skýrari sýn og vera sáttari við framtíðina
Blómstraðu á breytingaskeiði býður upp á heildræna nálgun fyrir konur á breytingaskeiði ólíkt öðrum námskeiðum þar sem fókusinn er bara á einkennum eins og hitakófi eða þyngdaraukningu. Á þessu námskeiði skoðum við ekki aðeins leiðir til að takast á við líkamleg einkenni breytingaskeiðsins heldur líka til að næra andann og skapa tilfinningalegt jafnvægi.
Meðalaldur breytingaskeiðs er 51 ár. Meðallífslíkur kvenna á Íslandi eru 84 ár. Þá gætum við átt eftir minnst 30 ár. Einn þriðja ævinnar. Hvernig viltu hafa lífið næstu árin og áratugina?
Svefninn truflaðist
Það varð erfiðara að slaka á
Ég fór að finna fyrir ýmis konar fæðuóþoli, bólgum og sýkingum
Hugurinn varð þokukenndur og ég átti erfiðara með að einbeita mér
Ég reyndi ýmislegt en ekkert virtist hjálpa. Ég var farin að halda að ég þyrfti bara að sætta mig við þetta ástand. Jafnvel ég með alla mína þekkingu á heildrænni heilsu hafði mínar efasemdir um það að nokkrar breytingar á lífsstíl myndu duga á þessi sterku einkenni.
Á endanum fann ég þá hjálp og hvatningu sem ég þurfti til að gera nauðsynlegar breytingar á lífsstíl og mataræði OG til þess að halda þær út nægilega lengi til að finna mun. Ég fór að skoða mín fræði og breytingaskeiðið bæði út frá vestrænni og austrænni hugmyndafræði. Það hjálpaði mér við að tengja hlutina saman og sjá hvað væri mikilvægt.
Ég fór að tengja betur við líkamann og finna taktinn. Ég fór að skilja hvað ég þurfti til að líða betur og gefa mér meira rými fyrir sjálfa mig.
Ég veit af reynslu að breytingaskeiðið kallar á breiðvirka nálgun. Á þessu námskeiði deili ég því sem hefur virkað fyrir mig og margar aðrar konur í gegn um þetta mikilvæga æviskeið.
Að taka þátt í námskeiðinu gerði það að verkum að ég lít breytingaskeiðið jákvæðum augum og er nú með fullt af verkfærum í kistunni til að styðja við þessa vegferð.
Námskeiðið hjálpar mér að gera þær breytingar sem þarf. Ég finn strax mun þegar ég fer eftir því sem þú ráðleggur.
Hugleiðslan sem þú ert með er öðruvísi en ég hef verið að gera. Hún gerir mikið. Eins og maður sé að losa sig við drasl.
Guðrún hefur einstakt lag á að hvetja mann áfram á jákvæðan og skilningsríkan hátt. Námskeið sem eg mæli með fyrir allar konur.
Frábært námskeið í alla staði og gott að geta tekið þetta á manns eigin hraða,. Fyrirlestrar og umræðutímar að eigin vali.
Bestu þakkir fyrir mig.
Ég er búin að upplifa meiri yfirvegun, ró og betri stjórn á skapinu mínu. Ég er orðin liðugri sem er frábært. Ég skil líka betur hvað streita hefur miklar afleiðingar og hversu gott það er að ná henni niður.
Ég komst að því hversu gott það er að iðka allskyns öndunaræfingar og jógaæfingar. Ég er búin að upplifa mikið af góðum tilfinningum síðastliðinn mánuð.
Þetta námskeið hefur aukið skilning minn á því hvað það er að vera kona og hvernig best er að komast á réttan hátt í gegn um breytingarskeiðið
Takk fyrir mig! Mér fannst þetta námskeið frábært. Ég er búin að læra fullt sem ég mun taka með mér út í lífið. Bestu þakkir fyrir allt.
Ef þú ert að finna fyrir einkennum breytingaskeiðsins eða vilt koma þér í gott jafnvægi og fyrirbyggja einkenni. Þau geta hafist við 40 ára aldur eða jafnvel fyrr og þau geta haldið áfram að koma upp löngu eftir að blæðingar hætta. Jafnvel mörgum árum seinna.
Ef þú vilt öðlast meiri skilning á því hvað líkami þinn þarf til að fara vel í gegn um þennan tíma og fá stuðning og verkfæri til að raða saman brotunum, bæta orkuna og finna jafnvægi
Ef þú ert tilbúin að stíga skref til að næra eigin heilsu. Að gera litlar breytingar á lífsstíl smátt og smátt, svo þú getir skapað þér meira frelsi og orku
Ef þú vilt vera hluti af samfélagi kvenna og heyra hvernig aðrar konur takast á við þennan tíma, sækja þér stuðning og finna að þú tilheyrir.
Þegar við vitum hvað við erum að takast á við þá verður auðveldara að forgangsraða og bjóða fjölskyldu og samferðafólki að styðja og sýna tillit.
Þú ert að leita að skyndilausnum án þess að vilja taka skref í átt að auknum þroska og bættri heilsu
Þú ert ekki opin fyrir því að gera (litlar) lífstílsbreytingar og prófa eitthvað nýtt
Það eina sem hindrar okkur í að ná árangri eru okkar eigin hugmyndir um okkur sjálfar og takmörk okkar eða tækifæri
Bara þú getur gert alvöru úr markmiðunum þínum.
Náttúrulegar lausnir fyrir
Kvíða og streitu
Hormónaheilbrigði
Mataræði og lífsstíll sem styður við aukna orku
Jólameltingin
Líkamsgerðin þín
Náttúrulegar lausnir fyrir:
Hitakóf og nætursvita
Rútína sem styður þig. Mataræði fyrir svefn, næring fyrir taugakerfið
Slökun og sjálfsdekur
Tökumst á við kvíða
Náttúrulegar lausnir fyrir:
Svefntruflanir
Náttúrulegar lausnir fyrir:
Heilaþoku og skapsveiflur
Bólguminnkandi mataræði. Áhersla á liðkandi iðkun.
Náttúrulegar lausnir fyrir:
Verki og þyngdaraukningu um miðjuna
Leiðin áfram.
Náttúrulegar lausnir fyrir:
Þunglyndi og kvíða
Í hverri viku: Jóga og öndunaræfingar
12 vikna námskeið sem nær yfir 14 vikur
Tveggja vikna hlé yfir jólin til að melta og njóta. Þú verður samt áfram með stuðninginn, bara ekki nýtt efni í þessar tvær vikur
Zoom fundir einu sinni í viku
Kannastu við þetta?
Skapsveiflur, aukablæðingar á breytingaskeiði, svefntruflanir, einbeitingarskort sem stafar af ofvirkum huga, þurra húð og þurrk í leggöngum, hægðatregðu, minnkaða kynhvöt, kvíða, áhyggjur og viðkvæmni gagnvart streitu eða beinþynningu?
Eða...
Ég gaf mér svigrúm og tækifæri til að hafa mig framar í forgangsröðunni.
Mér finnst æfingarnar frábærar á morgnanna og öndun skiptir miklu máli.
Guðrún var frábær leiðbeinandi og gaf sig alla í þetta. Svo hvetjandi, vel undirbúin og jákvæð.
Frábært námskeið og hverjar krónu viðri. Takk innilega fyrir mig
Það er bara svo margt gott og fallegt við námskeiðið sem vekur mig til umhugsunar, bæði um mig og lífið almennt og beytingaskeiðið er þvílíkt breytingaskeið sem tekur tíma að vinna úr.
Námskeiðið er ferðalag inn á við 🩷 Vel uppsett námskeið og góðar leiðbeiningar að fara eftir. Mæli með.
Það er til tilvitnun í Hugh Laurie þar sem hann segir "Mér finnst það hræðileg synd að bíða þangað til þú ert tilbúin. Það er ekki til neitt sem heitir að vera tilbúinn. Það sem er til er bara hér og nú. Og það er kannski alveg eins gott að gera hlutina núna. Svona almennt þá er núna bara nokkuð góður tími".
Þegar við segjum að við séum ekki tilbúin þá eru oft ótti og fullkomnunarárátta kraumandi undir niðri. Ótti við að mistakast, ótti við að vera ekki nógu góð, ótti við að vera dæmd, ótti við að eitthvað verði of mikið.
En það er líka eitthvað spennandi við það að taka stökkið. Að trúa á sjálfa sig, áður en rökhugsunin tekur yfir.
En jafnvel þó rökhugsunin nái yfirhöndinni, þá myndi hún líklega styðja þig. Hún myndi líklega hafa orð á því að það að næra líkamann og koma jafnvægi á hormónin og heilsuna, með stuðningi samfélags sem vill líka gera það sama, sé kannski ekki svo vitlaus hugmynd.
Námskeiðið er sex lotur. Hver lota er tvær vikur og með fókus á mikilvæga þætti eins og taugakerfið, hormónaheilbrigði, mataræði, hvíld og tilfinningalega vellíðan. Hver lota inniheldur fyrirlestra, verklegar æfingar og stuðning til að innleiða breytingar smám saman.
Það tekur um 1-2 tíma í hverri viku að horfa á myndböndin, ljúka æfingum og íhuga efni hverrar lotu. Námskeiðið er hannað til að passa inn í annasamt líf, og með breytingum sem þú getur innleitt á þínum hraða.
Nei, engin fyrri þekking er nauðsynleg! Námskeiðið er opið öllum og ég gef góðar útskýringar svo þú getir aðlagað hlutina að þér og þínum þörfum
Já flest stéttarfélög styrkja námskeiðið. Það getur bæði fallið undir sjálfshjálparnámskeið, hreyfingu og fleiru í þá áttina.
Zoom tímarnir eru teknir upp svo þú getur horft eftirá. Námskeiðið er sveigjanlegt og þú getur alltaf nálgast efnið á þínum tíma. Markmiðið er að ná árangri, ekki fullkomnun!
Blómstraðu í breytingaskeiðinu er einstakt með heildrænni nálgun sinni, þar sem þú lærir að greina þína líkamsgerð og færð ráð sem eru sérstaklega miðuð við breytingaskeiðið. Námskeiðið er einstök blanda af fræðslu, iðkun og persónulegum stuðningi til að gera breytingarnar auðveldari og afslappaðri. Og með áherslu á raunverulegar breytingar á 12 vikum.
Já. Þú hefur aðgang að samfélagi þar sem þú getur deilt reynslu þinni og fengið stuðning. Einnig verða tækifæri til að spyrja spurninga og fá sérstakar leiðbeiningar frá mér.
Það eru engar strangar mataræðisreglur. Námskeiðið veitir frekar leiðbeiningar um mat sem eflir orku, stuðlar að hormónajafnvægi og bætir meltingu út frá heildrænni nálgun. Þú færð hvatningu til að gera breytingar sem henta þér á þínum forsendum. Þú lærir að þekkja þína líkamsgerð og yfirleitt eru ráðin fyrir þína líkamsgerð líka eitthvað sem þú sækir í eðlislægt.
Já, námskeiðið er hannað til að vera styðja við aðrar leiðir, þar með talið hormónameðferð. Við leggjum áherslu á heildræna nálgun og lífsstíl sem styður við þig á þinni vegferð
Heilsan er okkar auður. Og meira eftir því sem við eldumst. Blómstraðu á breytingaskeiði er fjárfesting í heilsunni.
Kemurðu með?