Bætt líðan á breytingaskeiði

Finndu þinn takt

Frítt netnámskeið fyrir konur sem upplifa þreytu, streitu eða svefntruflanir - og vilja endurheimta orku, finna kyrrð og skapa jafnvægi í daglegu lífi.

Af hverju er líkaminn ekki eins og hann var?

  • Vaknarðu þreytt – jafnvel þó þú hafir sofið, eða áttu erfitt með að ná nægum svefni?

  • Finnst þér stundum eins og hugurinn sé í þoku og engin leið að koma skipulagi á hugsanir?

  • Er líkaminn í yfirspennu? Áttu erfitt með að slaka á og ert lengi að ná jafnvægi eftir álag og streitu?

  • Ertu gjörn á að vera gagnrýnin á sjálfa þig – eins og það sem þú gerir sé aldrei nóg?

  • Langar þig að finna aftur ró og léttleika, en veist ekki hvar þú átt að byrja?

    ...Líkaminn þinn breytist. Gömlu aðferðirnar virka ekki lengur EN það eru til leiðir sem virka

Það sem við förum í gegnum saman

  • Dagur 1 – Lærðu að skilja betur líkama þinn
    Hvað er að gerast á breytingaskeiði – og af hverju virka gömlu aðferðirnar ekki lengur.
    Þú færð innsýn í breytingar á hormónum og taugakerfi sem oft valda svefntruflunum, orkuleysi og skapbreytingum, svo að þú getir séð einkennin í nýju ljósi og byrjað að endurskoða neikvæð viðhorf til sjálfrar þín.

  • Dagur 2 – Litlar breytingar geta haft mikil áhrif
    Hvernig daglegar venjur hafa áhrif á líkama, huga og líðan.
    Þú kynnist einföldum skrefum sem róa taugakerfið, draga úr spennu og auka jafnvægi, svo þú getir strax fundið meiri orku og frið í daglegu lífi.

  • Dagur 3 – Fyrstu skrefin í átt að meiri ró og styrk
    Hvernig þú getur byrjað að skapa takt sem styður þig í daglegu lífi.
    Þú sérð hvernig litlar daglegar venjur geta styrkt þig og fundið friðsæld. Og hvers vegna þetta er aðeins byrjunin á dýpri umbreytingu, svo þú farir út með skýr fyrstu skref sem styðja þig áfram. 

Þetta námskeið er fyrir þig ef...

  • Þú finnur fyrir einkennum á breytingaskeiði eins og þreytu, svefntruflunum, kvíða eða heilaþoku - og vilt kynnast einföldum náttúrulegum leiðum til að höndla betur einkennin þín.

  • Þú ert ekki byrjuð á breytingaskeiði en vilt undirbúa þig og skilja betur hvað framundan er – eða hefur lokið tíðahvörfum en finnur enn fyrir áhrifum.

  • Þú upplifir orkuleysi, einbeitingarskort eða sjálfsgagnrýni – og finnur að þær leiðir sem virkuðu áður gera það ekki lengur, eins og það að halda bara áfram, sama hvað.

  • Þig langar að finna meiri ró, jafnvægi og sjálfstraust – og heyra reynslu annarra kvenna á svipaðri vegferð.

  • Þú ert tilbúin að nálgast breytingaskeiðið sem tíma vaxtar og valdeflingar en ekki sem hnignun.

Líkaminn er vitur vera

Lífið sem við lifum hefur fært okkur fjær náttúrunni og hvert öðru. Um leið fjarlægjumst við líkamann og þá visku sem hann býr yfir.

Við höfum lært að líta á líkamann sem eitthvað sem þarf að laga. En sannleikurinn er sá að hann talar til okkar á hverjum degi – ef við gefum okkur tíma til að hlusta.

Þegar við lærum að treysta líkamanum að nýju, opnast dyr að ró, seiglu og orku sem býr innra með okkur öllum.

Sæl, ég heiti Guðrún

Eftir margra ára baráttu við þreytu og streitu fann ég leið til að endurheimta orku og jafnvægi. Nú styð ég aðrar konur til að gera slíkt hið sama.

Ég hef kennt jóga, öndun og um heildræna heilsu í yfir 30 ár og hef stutt hundruð kvenna í að finna meiri orku, ró og sjálfstraust.

Þegar ég nálgaðist fimmtugt fann ég fyrir mikilli þreytu og orkuleysi sem ég tengdi lengi vel ekki við breytingaskeiðið. Sjálfstraustið minnkaði og ekkert af því sem ég reyndi virtist hjálpa. Um tíma hélt ég að ég yrði bara að sætta mig við þetta ástand.

Smám saman lærði ég að skapa mér nýjan takt, róa taugakerfið og hlusta betur á líkamann – með nýjum skilningi, daglegum venjum og mýkri nálgun á sjálfa mig. Það breytti öllu.

Ég nýt þess að deila þessum einföldu en áhrifaríku leiðum með öðrum konum á miðjum aldri – svo þær geti fundið sátt og hvílt betur í líkamanum, byggt upp seiglu og blómstrað í þessum nýja og spennandi kafla lífsins.

Er lífið í biðstöðu? Ertu tilbúin að finna nýjan takt sem styður þig á þessum tíma í lífinu?